|
Frambođ
Hrafnhildar Sigurđardóttur til formanns Sambands
íslenskra myndlistarmanna
Kćru SÍM félagar og vinir.
Ég hef ákveđiđ ađ gefa kost á mér í formannsembćtti SÍM fyrir kjörtímabiliđ 2010-2012, en ađalfundur SÍM verđur haldinn laugardaginn 6. mars 2010 kl.13 í Hugmyndahúsi háskólanna (Saltfélagiđ)
ađ Grandagarđi 2 í Reykjavík.
Ég er myndlistarkona, búsett í Reykjavík, og sem formađur SÍM mun ég sinna ötullega öllum ţeim störfum sem slíku embćtti fylgja, svo sem fundarsetu og samvinnu međ ráđum og nefndum í borginni auk stjórnarfunda SÍM. Ég tel áríđandi ađ halda áfram ţví mikla uppbyggingarstarfi sem félagiđ hefur unniđ ađ síđastliđin ár og standa vörđ um ţau réttindi sem áunnist hafa.
. Ég vil ađ SÍM setji sér og öllum félögum, sem sitja í nefndum og ráđum sambandsins, siđareglur ţar sem verklagsreglur um siđgćđi, gagnsći, lög landsins, jafnrétti óháđ kyni, aldri eđa myndlistarmiđli og opin umfjöllun verđi í forgrunni. Jafnframt vil ég vinna ađ ţví ađ félagar SÍM fái inngöngu í stéttarfélag međ fulla sjúkra- og lífeyristryggingu líkt og ađrar starfsstéttir. Ég er tilbúin ađ vinna af krafti fyrir myndlistarmenn í landinu og ţćtti gott ađ fá athugasemdir og tillögur ađ málefnum sem á ykkur brenna.
Eins og mörg ykkar vitiđ ţegar, ţá hef ég samhliđa ţví ađ starfa sem myndlistarkona gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum fyrir SÍM og ađildarfélag ţess Textílfélagiđ í gegnum árin. Ég sat í fulltrúaráđi SÍM 1993-1994 og stjórn ţess 1994-1996 og fyrir hönd ţess í dómnefnd Listskreytingasjóđs 2004-2006. Eins sat ég í stjórn Textílfélagsins frá 1993-1995, fyrir hönd ţess í Form Ísland 1992-1995 og í ýmsum nefndum félagsins frá 2000-2005. Ég hef einnig setiđ í stjórn annara félaga og sjálfseignarstofnana og t.d. veriđ ritari bćđi AFS-skiptinemasamtaka og Textílseturs á Blönduósi.
Ég útskrifađist úr textíldeild Myndlista- og handíđaskólans áriđ 1986 en 1997-1998 var ég eitt ár í skúlptúrdeild, áđur en ég hélt til Bandaríkjanna, en ţađan útskrifađist ég áriđ 2000 međ MFA í skúlptúr frá háskólanum í Boulder, Colorado. Áriđ 2002 hóf ég nám í Háskóla Íslands ţađan sem ég útskrifast međ Diploma í stjórnun í ársbyrjun 2008, en jafnframt hef ég lokiđ námi til BA-prófs í ensku og ritlist. Í vor lýk ég svo síđustu áföngunum til fullgilds meistaraprófs í Opinberri stjórnsýslu(MPA) međ áherslu á menningarstjórnun og stjórnun félagasamtaka.
Undanfarin tvö ár hef ég unniđ ađ uppbyggingu Ness listamiđstöđvar á Skagaströnd, sem eru gestavinnustofur reknar međ svipuđu sniđi og hjá SÍM. Ég fékk ţá hugmynd, ţegar ég sá tvö tóm frystihús til sölu á Skagaströnd, ađ hér vćri tilvaliđ ađ setja upp gestavinnustofur fyrir innlenda og erlenda listamenn. Nes listamiđstöđ (Nes Artist Residency) var síđan stofnuđ í mars 2008 og var ég ráđin sem framkvćmdastjóri í hálfu starfi til ađ standa ađ uppbyggingu og rekstri miđstöđvarinnar. Nú tveimur árum síđar getum viđ tekiđ á móti 13-15 listamönnum í mánuđi og hjá okkur dvöldu á s.l. ári um 110 listamenn. Reynsla mín í ţví starfi mun nýtast SÍM til frekari uppbyggingar á gestavinnustofum ţeirra.
Í komandi kosningum vonast ég eftir stuđningi SÍM félaga. Ef ţú vilt styđja mig til formannsembćttis, ţá biđ ég ţig ađ mćla međ mér viđ ađra í félaginu. Eins getur ţú gerst stuđningsađili á Facebook og hvatt ađra vini og SÍM félaga til ađ gera slíkt hiđ sama međ ţví ađ ,,deila” síđunni međ öđrum.
Kveđja,
Hrafnhildur Sigurđardóttir
Á eftirtöldum vefsíđum er ađ finna frekari
upplýsingar um frambođ mitt, sem uppfćrast reglulega. Vertu
velkomin/n ađ heimsćkja ţćr:
Síđa Hrafnhildar á Facebook
Stuđningssíđa
Hrafnhildar á Facebook
|